Smíða deild Apex

Smíðadeild Apex sér um fjölbreytta og faglega smíðavinnu fyrir heimili og fyrirtæki. Við byggjum á áralangri reynslu, vönduðum vinnubrögðum og skýrum samskiptum – frá fyrstu hugmynd til fullbúinnar framkvæmdar.

Við tökum að okkur meðal annars:

  • Parketlagnir og gólfvinnu

  • Ísetningu glugga og hurða

  • Gerð palla og grindverka

  • Steypuvinnu og undirbúningsverk

  • Klæðningarvinnu og endurnýjun útveggja

  • Þakvinnu og viðgerðir

  • Uppsetningu á léttveggjum og innanhússbreytingum

Við leggjum áherslu á að skila traustum, snyrtilegum og endingargóðum lausnum sem standast íslenskar aðstæður og væntingar viðskiptavina. Hvort sem um er að ræða lítið verkefni eða stærri framkvæmdir tryggjum við fagmennsku, áreiðanleika og góða upplifun í gegnum allt ferlið.